
17 mar Einar Ísak Friðbertsson
Komiði sæl
Einar Ísak Friðbertsson heiti ég aka Einsi Fribba. Til að gera nemendaráðið eins gott og hægt er þá er ekki annað í stöðunni en að kjósa mig sem varaformann💼.
Stefnumálin mín eru eftirfarandi:
Ég vil koma af stað sketsþáttanefnd og vekja sæluna (eða eitthvað slíkt) aftur til lífsins
Ég ætla að sjá til þess að Söngvakeppnin verði skemmtilegri að horfa á og fyrir vikið haldin með mun minna tapi en síðustu ár og þar af leiðandi geta haldið 4 góð böll með góðu lineupi
Ég ætla að reyna að hafa fleiri viðburði sem henta öllum og eru ódýrir eða fríir t.d:
– Pubquiz
– Karaoke kvöld
– Paintball mót
– Lazertag mót
– Fight club undir brúnni
– Lanmót
– Útilega
– Sleðaferðir á stórahól
Og fullt fullt fleira
Ég vil fá artista til þess að vera með skemmtiatriði í miðvikudags götum
Ég lofa að Úrvals Flatkökur verði ekki á lokaballi FSU.😢
Þetta er bara hluti af því sem ég hef uppá að bjóða og er það staðfest að enginn annar kemur til greina sem varaformaður
Ást og friður
X-Einsifribba