Lokakvöldvaka með bingóívafi!
BINGÓ!
Spennan er í hámarki.
Þú ert komin/nn með allar tölurnar nema Inga 17.
Bingóstjórinn segir "jæja nú hlýtur að fara að koma Bingó".
...Þú svitnar í lófunum af stressi og horfir á þessa helvítis tölu!
Þulurinn segir Ingi...
Þig er farið að svima og þér hefur aldrei verið svona heitt í framan
"17"
Sælutilfinning og unaðsléttir, spennufall og gleðitár!
Þú gargar "BINGÓ"!
Hver vill ekki upplifa þessa tilfinningu?
Ef þú kemur á PáskaBingó / Kvöldvöku NFSu gæti þetta verið þú!
Ásamt því að þú færð að spreyta þig á bingóhæfileikum þínum þá mun ekki vera lítið um skemmtiatriðin til að halda þér í fíling!
Glænýtt myndband MC Jökuls og MC Daða verður frumsýnt!
Tískusýning frá stelpum úr skólanum!
Rennt verður yfir síðasta ár og tónlistina sem kom á kvöldvökum.
ÚRSLIT KOSNINGA Í NEMENDARÁÐ!
Guðjón Óskar Kristjánsson, sigurvegari trúbadorakeppni Áttahundruð bars kemur og tekur lagið!
Ekki láta þetta framhjá þér fara!
Komdu á PáskaBingó / Kvöldvöku!
Glæsilegir vinningar í boði!

