Lokaball!
Lokaballið verður föstudaginn, 13. maí
DJ Flamingo, DJ S-Blaztah, MC Daði & MC Jökull, Banarnir og Agent Fresco munu öll spila! Eitthvað fyrir alla!
Húsið opnar kl. 22 og lokar kl. 02.
Verð í forsölu er 1500 kr. fyrir félaga en 2000 kr. fyrir ófélaga.
Verð við dyrnar er 2000 kr. fyrir félaga en 2500 kr. fyrir ófélaga.
Forsala byrjar á morgun í hádeginu og verður fram á föstudag. Aðeins 250 miðar í forsölu. Svo verður forsala miðvikudaginn, fimmtudaginn og föstudaginn fyrir lokaballið, semsagt 11,12 og 13 maí inná hreiðri frá kl.12-14.
En að öðru!
Aðalfundur var settur í dag og gekk allt að óskum. Nokkrar lagabreytingar voru gerðar en þær voru ansi sterkar. Þ.m.n. að nú hefur formaður tækjanefndar atkvæðisrétt á fundum, rétt eins og aðrir í nemendaráði, og er einnig skyldugur til þess að mæta á fundi, rétt eins og allir aðrir í nemendaráði.
Einnig var breytt nokkrum titlum, en það var breytt Formanni Ritráðs í Ritstjóra, Formanni leikfélags í Leikhússtjóra, og síðast en ekki síst þá kallast Formaður skemmtinefndar núna Gleðigjafi.
En í þessu nýja nemendaráði eru:
Formaður: Karen Óskarsdóttir
Gjaldkeri: Sindri Snær Bjarnason
Ritari: Margrét Harpa Jónsdóttir
Markaðsstjóri: Andrea Björk Olgeirsdóttir
Ritstjóri: Gunnar Karl Ólafsson
Leikhússtjóri: Þuríður Marín Jónsdóttir
Gleðigjafi: Guðlaug Guðmundsdóttir
Formaður íþróttaráðs: Sara Árnadóttir
Formaður tækjanefndar: Guðmundur Bjarnason (Gummi í túni)
Vefstjóri: Þórunn Sara Guðbrandsdóttir


