Þórunn S | 20. mars 2012 10:32
Týpísk ástarsaga
Leikrit nfsu í ár kallast Týpísk ástarsaga og er það leikstýrt af Kára Viðarssyni. Leikritið er skrifað af fjórum nemendum skólans, Þuríði Maríni Jónsdóttir, Gunnari Karli Ólafssyni, Söru Árnadóttur og Fannari Frey Magnússyni.
Fjallar þetta leikrit um ástir og örlög nemenda í Menntó High. Sýningin er sýnd í menningarsalnum í Hótel Selfoss og er miðaverð 1500 fyrir félaga og 2000 fyrir ófélaga. Ekki láta þessa sýningu framhjá þér fara.
Næstu sýningar:
Miðvikudagur...
Þórunn S | 4. mars 2012 13:20
Flugakademía Keilis - Kynnisflug
Fimmtudaginn 8.mars mun Flugakademía Keilis koma og kynna flugnám í Fjölbrautaskóla Suðurlands frá 12.00 til 13.30. Þeir sem hafa áhuga geta farið í kynnisflug á Selfossflugvelli, ef veðrið leyfir, frá klukkan 14.00 til 17.00. Reyndir flugkennarar svara öllum spurningum um námið fyrir áhugasama.
Allir endilega að mæta, þetta er mjög áhugavert og hverjum langar ekki að skella sér í smá flugferð :)
Lesa meira
Þórunn S | 4. mars 2012 13:16
Kátir dagar og Flóafár
Kátir dagar fóru fram hér í skólanum miðvikudaginn og fimmtudaginn 29. feb og 1. mars. Fór hér fram endalaus gleði og endaði þessi stórskemmtilega hátíð með hinum klassíska lokahnykk út í íþróttahúsinu Iðu.
Svo fór hið víðfræga Flóafár fram á föstudeginum 2. mars og tóku þar fimm lið þátt í fjörinu, Útihátíðin, Rockabilly, Team 2. hæð, Harry Potter og Ofurhethurnar. Stóðu allir sig eins og hetjur með að skreyta svæðið sitt, keppa í þrautum og styðja liðið sitt...
Lesa meira
Þórunn S | 2. mars 2012 15:00
Árshátíð
Árshátíðarballið gekk mjög vel að þessu sinni og var það Páll Óskar sem sá um að trylla lýðinn. Rúturnar komu með fullt af fólki niður í Þykkvabæinn og var rooosaleg stemming. Stóð ballið frá 22 til 02.00 og var ekki var stoppað að dansa þangað til. Vonum innilega að sjá svona skemmtilega innlifun og stemmingu í fólki á næsta balli. Takk fyrir okkur.
Lesa meira
Þórunn S | 23. febrúar 2012 16:18
Gettu Betur vs. Versló
Gettu Betur verður á morgun (föstudaginn 24. feb) og munum við keppa á móti Verslunarskóla Íslands. Hefst keppnin stundvíslega klukkan 20.00 í Efstaleiti 1 (Rúv húsið). Rútur munu fara á keppnina og fara þær frá FSu strax klukkan hálf 7, þannig ekki mæta seint því að við munum ekki bíða eftir neinum eftir það. FRÍTT er í rútuna. Ef þið ætlið líka á ballið, fer hún strax í Þykkvabæinn eftir keppnina. Þeir sem vilja ekki fara á ballið geta farið úr rútunni á Selfossi, því...
Lesa meira
Þórunn S | 23. janúar 2012 16:55
Gettu Betur
Núna er hin árlega gettu betur keppni byrjuð og fóru strákarnir okkar vel af stað. Sigurðu þeir FSn með 21 stigi gegn 5. Munu þeir keppa aftur í kvöld (mánudaginn 23. janúar) við Starfsmenntabraut á Hvanneyri og að sjálfsögðu miðum við á ekkert annað en sigur! Keppnin er haldin í Efstaleiti 1 og hefst hún klukkan 19.30! Liðsmenn FSu eru Gunnlaugur Bjarnason, Eyþór Heimisson og Gísli Þór Axelsson. Allir hjartanlega velkomnir og hvetjum sem flesta að mæta og styðja strákana :)
Áfram...
Þórunn S | 9. nóvember 2011 22:10
Söngkeppni NFSu 2011!!
Dömur mínar og herrar, nú er stundin runnin upp! Hin árlega söngkeppni NFSu verður haldin í 21. skipti í íþróttahúsinu Iðu, fimmtudaginn 10. nóvember. 15 atriði og 22 keppendur munu berjast við sigurinn. Sigurvegarinn mun svo keppa fyrir hönd skólans í landskeppni fjölbrautaskólanna sem haldin er árlega á Akureyri. Húsið opnar klukkan 7 og hefst keppnin klukkan 8. Það er um að gera að mæta sem fyrst til að tryggja sér gott sæti, enda er búist við fjölda fólks.
Ástin mun vera...
Lesa meira
Þórunn S | 26. október 2011 15:31
Halloweenball og halloween kvöldvaka!
Sælir, það fór nú ekki framhjá neinum að hið árlega halloweenball var haldið á fimmtudeginum síðastliðnum í Hvíta húsinu. Var það núna haldið á fimmtudegi og haustfrí daginn eftir, svo allt fór vel fyrir því. Margt var um manninn á ballinu og var geðveikt fjööööör. Veðurguðirnir tróðu upp við mikinn fögnuð. DJ.amma sá einnig um að skemmta lýðnum. Á efri hæðinni voru upprennandi skífuþeytarar sem sáu um skemmtilega músík.
Svo kom hið langþráða haustfrí. Sem stóð...
Lesa meira
Þórunn S | 17. október 2011 23:20
Hafragrautur
Hafragrautur gefur glans í hár,
hann hreinsar líf og sál,
þerrar þín tár,
og setur plástur á sár.
Þetta er bara byrjunin á því hvernig má lýsa hinum stórkostlega og gómsæta hafragraut. Hann er stútfullur af vatnsleysanlegum trefjum (staðfest af vísindavef), stuðlar að lækkun blóðkolesteróls (einnig staðfest af vísindavefnum) og stuðlar einnig að lækkuðu blóðsykursvari (enn og aftur staðfest af vísindavefnum, ef vísindavefurinn hefur ekki rétt fyrir sér veit ég ekki hvað).
Nú...
Þórunn S | 12. september 2011 13:56
30 ára afmæli skólans!!
Á morgun, þriðjudaginn 13. september verður haldið upp á 30 ára afmæli skólans. Dagskráin hefst klukkan 8 og verður hún alveg fram til kvölds.
Mun hefjast skrúðganga og afhjúpun skiltsins sem mun prýða fyrir utan skólann. Allskonar skemmtanir verða í skólanum yfir daginn og verða þar á meðal trúbadorar, sölubásar, candyfloss og ískrap.
Kvöldið mun svo enda með nokkrum skemmtiatriðum, afmælisávarpi og allskonar fjöri. Svo endilega að mæta ef þið viljið ekki missa af once in a...
Þórunn S | 7. september 2011 14:16
Busakvöldvaka!
Jææææja elsku krúsímúsí FSu-ingar nú er komið að fyrstu kvöldvöku annarinnar, Busakvöldvakan. Hún verður staðsett í sal 106 og byrjar klukkan 8.
Kreisí hlutir munu gerast í kvöld, m.a. úrslit kosninga, busamyndband, busakeppni, tískusýning með fatnaði frá Ozone, uppistandarinn Bergur Ebbi mætir og tryllir lýðinn. Svo stígur á svið órafmögnuð DJ. AMMA, ég endurtek ÓRAFMÖGNUÐ!!
Svo endilega að mæta í kvöld á slaginu 8 út í FSu. Það kostar örlitlar 500 krónur fyrir félaga...
Lesa meira
Þórunn S | 31. ágúst 2011 13:09
Busaballið
Jæja krakkar, nú er komið að því sem allir busar hafa beðið eftir... BUSABALLIÐ sjomleh! Verður það haldið í Hvítahúsinu föstudaginn 2. september. frá klukkan 22.00 til 02.00. Rútur fara frá Hlíðarenda Hvolsvelli klukkan 21:15 og stoppa á Olís Hellu og landvegamótum og svo fer rúta frá Þorlákshöfn klukkan hálf tíu með stoppum á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Miðaverð fyrir félaga er 1500 kr. í forsölu og 2000 kr. í dyrinni. Verð fyrir ófélaga er 2000 kr. í forsölu og 2500 kr. í...
Lesa meira
Jökull | 27. apríl 2011 17:28
Lokaball!
Lokaballið verður föstudaginn, 13. maí
DJ Flamingo, DJ S-Blaztah, MC Daði & MC Jökull, Banarnir og Agent Fresco munu öll spila! Eitthvað fyrir alla!
Húsið opnar kl. 22 og lokar kl. 02.
Verð í forsölu er 1500 kr. fyrir félaga en 2000 kr. fyrir ófélaga.
Verð við dyrnar er 2000 kr. fyrir félaga en 2500 kr. fyrir ófélaga.
Forsala byrjar á morgun í hádeginu og verður fram á föstudag. Aðeins 250 miðar í forsölu. Svo verður forsala miðvikudaginn, fimmtudaginn og föstudaginn fyrir...
Jökull | 11. apríl 2011 13:48
Lokakvöldvaka með bingóívafi!
BINGÓ!
Spennan er í hámarki.
Þú ert komin/nn með allar tölurnar nema Inga 17.
Bingóstjórinn segir "jæja nú hlýtur að fara að koma Bingó".
...Þú svitnar í lófunum af stressi og horfir á þessa helvítis tölu!
Þulurinn segir Ingi...
Þig er farið að svima og þér hefur aldrei verið svona heitt í framan
"17"
Sælutilfinning og unaðsléttir, spennufall og gleðitár!
Þú gargar "BINGÓ"!
Hver vill ekki upplifa þessa tilfinningu?
Ef þú kemur á PáskaBingó / Kvöldvöku NFSu gæti þetta verið...
Lesa meira
Jökull | 4. apríl 2011 18:46
KOSNINGAR Í FSU!
6 apríl verða kosningar í nemendaráð og nefndir FSu. Hægt verður að bjóða sig fram í
vefstjóra sem að sér um facebook nemendaráðs og nfsu.is
formann tækjanefndar sem að sér um að öll tæki séu tengd og/eða á sínum stað
formann íþróttaráðs sem að sér um FSu deildina, Flóa fár og alla íþróttatengda viðburði skólans
...formann leikfélags sem að sér um Morfís og leikritið og næst verður söngleikur svo það verður bara gaman!
formann skemmtinefndar sem sér um kvöldvökur,...
Lesa meira
Sölvi | 14. mars 2011 11:56
Söngleikur NFSu 2011 og Lazer Tag úrslit !
Núna er loksins komið að því, árangur erfiðis leikfélags NFSu:
Söngleikur NFSu 2011: Alla Leið Heim !
Stórskemmtilegur gamanleikur gerður eftir myndinni O Brother Where Art Thou eftir Coen-bræður !
Söngleikurinn fjallar um þrjá strokufanga á leið sinni aftur á heimaslóðir sínar þar sem einn þeirra átti meintan fjársjóð.
Pantaðu miða núna í síma: 8656731 eða með email í midar@nfsu.is !!
Við erum öll búin að vinna hart að þessu í mjög langan tíma og vonumst til að sjá sem...
Sölvi | 11. mars 2011 18:26
Rútuferðir á ballið í kvöld !
Rútuferðir á ballið í kvöld verða eins og venjulega !
Hvolsvöllur: 21:20
Hella: 21:30
Þorlákshöfn: 21:20
Eyrarbakki: 21:45
Stokkseyri: 21:55
Eru ekki annars allir búnir að finna 80's gallann sinn ?
Þetta verður svo geðveikt !! Eins og 80's þema sé ekki skemmtilegasta þema í heimi !! Ekki á hverjum degi sem maður getur djammað í asnalega flottum fötum !!
Takið alla vini ykkar með !!
Hérna eru nokkur dæmi um föt og fleira sem tengist níunda áratugnum:
Adidas...
Sölvi | 9. mars 2011 1:52
Öskudagur !
Í tilefni Öskudagsins verður kötturinn sleginn úr tunnunni í miðrýminu kl.11 í dag (miðvikudaginn 9.mars) !
Það verður hellingur af nammi og 4 miðar á ballið í tunnunni !!
Svo byrjar líka miðasalan á ballið á sama tíma og sama stað.
Miðasalan verður í öllum hádegishléum út vikuna.
Sölvi | 8. mars 2011 0:48
80's ball !
Föstudaginn 11.mars næstkomandi mun NFSu halda 80s Ball á 800 Bar með DJ Dúóinu PLUGG'D ! 80s þemað verður tekið alla leið og 800 Bar verður skreyttur frá toppi til táar, og af sjálfsögðu mæta allir í 80's fötum !!Skemmtiteymið Flamingo mun sjá um að hita mannskapinn upp með tónum frá níunda áratugnum.
Ballið byrjar á slaginu 22:00 og lýkur kl.02:00.
Verð er sama og venjulega:
1500 í forsölu og 2000 í dyrum fyrir félaga og
2000 í forsölu...
Sölvi | 7. mars 2011 0:00
Ný heimasíða !
Til þess að endurvekja fyrri vinsældir nfsu.is ákváðum við að fá hann Kristinn Svansson til þess að taka síðuna algerlega í gegn ! Í fyrsta lagi endurhönnuðum við útlit síðunnar frá toppi til táar. Svo breyttum við og bættum eins og við gátum, skiptum út myndakerfinu, bættum við viðburðakerfi, tókum út prófíla-kerfið og settum einfalda símaskrá í staðin, en fyrst og fremst tókum við inn nýja tíma og gerðum síðuna alla samhæfða við facebook ! Núna er hægt að kommenta,...
Sölvi | 2. mars 2011 16:05
Beygluæði tröllríður FSu
Það má segja sem svo að nemendur FSu séu sólgnir í beygluna, en hún kostar einungis 380 kr. í mötuneyti skólans. Eins og Andri nokkur Matt sagði þá er hún best með skinku en osturinn er möst! Fáið ykkur eina.
En úr einu í annað.
Haskoladagurinn.is
Laugardaginn 19. febrúar kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á þremur stöðum í borginni; í Ráðhúsi Reykjavíkur, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.
Persónuleg ráðgjöf um...
Sölvi | 4. febrúar 2011 16:10
Árshátíð FSu!
Föstudaginn 11. febrúar verður haldin fyrsta árshátíð FSu í 4 ár og verður hún að sjálfsögðu stórglæsileg.
Húsið opnar kl.18:30 og er öllum boðinn fordrykkur.
...Þá tekur við tveggja rétta máltíð úr eldhúsi Riverside.
HelgaBraga verður kynnir kvöldsins og sér um að allir skemmti sér vel, ásamthinum fjölmörgu skemmtiatriðum á meðan matnum stendur og þangað tilballið byrjar.
Þemað í ár er frost, svo be cool (höfundur vandræðalegs brandara: Matti Klith)
Ballið hefst 22:00...

