Söngleikur NFSu 2011 og Lazer Tag úrslit !
Núna er loksins komið að því, árangur erfiðis leikfélags NFSu:

Söngleikur NFSu 2011: Alla Leið Heim !
Stórskemmtilegur gamanleikur gerður eftir myndinni O Brother Where Art Thou eftir Coen-bræður !
Söngleikurinn fjallar um þrjá strokufanga á leið sinni aftur á heimaslóðir sínar þar sem einn þeirra átti meintan fjársjóð.
Pantaðu miða núna í síma: 8656731 eða með email í midar@nfsu.is !!
Við erum öll búin að vinna hart að þessu í mjög langan tíma og vonumst til að sjá sem flesta !
Annars er það í fréttum að sigurlið lazer-tag móts FSu tók þátt í úrslitakeppninni á milli allra framhaldsskóla á landinu og náði þeim glæsta árangri að lenda í þriðja sæti !
Svo skemmtilega vill til að við í FSu unnum fyrsta Lazer-tag framhaldsskóla-mótið sem var haldið hér á íslandi en höfum ekki unnið síðan, alveg eins og í Gettu Betur, en okkur hefur nú reyndar samt gengið mjög vel undanfarin ár. Lentum minnir mig líka í 3.sæti í fyrra.
Þannig að það má með sönnu segja að FSu-ingar eru einir bestu Lazer-tag leikmenn landsins !
Við óskum félögunum í ,,Kenndir'' til hamingju með frábæran árangur !
- Sölvi, out

